Monday, December 17, 2007

Jólahlaup og Kakó

Loksins er komin í tenging við ykkur aftur. Fyrir viku náði ég ekki inná bloggið eins og venjulega, það var ekki fyrr en ég var búin að ná sambandi við Óla að ég kom auga á augljósa leið til að tengjast aftur.(Einn sonur minn vinnur við tölvur og notar fyrir brandara á kaffistofunni þegar hann þarf að kenna mömmu sinni eitthvað á tölvuna).
En frá því síðast hef ég farið nákvæmlega eftir prógramminu góða (nema bara ekki náð að halda fyrirfram ákv. hraða - ætli það skipti máli?) t.d hljóp ég poveraid á 53mín en ekki 48:30 eins og stóð í prógramminu. Laugardagsæfingin var líka hundhæg vegna hálku fyrstu 10k og skemmtilegs félagsskapar(pottþéttar afsakanir). Kæru laugaskokkarar takk kærlega fyrir laugardaginn, frábært jólahlaup og Davíð og Ólf takk fyrir jólakakóið. Þetta var allt æði.
Í dag bíða svo jassú sprettir og það er ekki spurning um að ég get þá æfingu 10x800m á 13,1 samtals 17km. Fór þessa æfingu síðasta mánudag án þess að drepa mig.
Heæðslukast dagsins: Verkur í vi. hné á laugardaginn og í gær. eins og sé eitthvað laust að hringla í hnéinu sem veldur vondum verk :(

No comments: