Saturday, June 20, 2009

Tempóæfing með kvennahlaupsívafi


Skemmtileg æfing frá WC í Mosfellsbæ með Elínu. Hituðum upp upp að Varmá, tókum þar Kvennahlaupið á temói- Elín fylgdi mér, og skokkuðum svo aftur niður heim að WC. Mjög skemmtilegt vorum báðar í pilsum og vorum langfyrstar 7km en það tók enginn eftri því nema við tvær ;) Og til að bæta úr því náðum við að láta ljósmyndara mynda okkur í bak og fyrir- en klikkuðum eitthvað á viðtalainu. Fengum ókeypis líftryggingu uppá eina miljón frá Sjóva í eitt ár -gloss og allskonar dót með. Hittum Öggu+ Evu með börn og buru.
Fín æfing með 7km tempó inní. Svo skemmtilegt- bara eins og maður væri í tómum leikarasakap.

Monday, July 14, 2008

Laugaveginum 2008 lokið.

Bara svo þið vitið það sem ekki hafið farið: þá er svo gaman á Laugaveginum. Fyrir ykkur hin sem hafið farið og voruð alveg í formi til að fara, þið áttuð að sjálfsögðu að vera þarna með. Þá hefði ég örugglega ekki hlaupið svona mikið ein en ég held að ég hafi verið ein um 90% af leiðinni.
En þetta stendur allt til bóta árið 2009 Verða Laugaskokkarar aðal- á Lauagaveginum enda vegurinn skírður eftir okkur. Davíð, Þórir, Baldur Jónsson og Bjargey eru búin að lofa að koma og Eggert, Kolla, Guðrún og fleiri eru alveg að fara að lofa því. Svo ég minnist nú ekki á Pétur Ísleifs eða hjónakornin Ingólf og Kristínu en þau hafa ekki nokkra afsökun fyrir hafa ekki verið með okkur frekar en þið hin.
Batnandi björnum er best að lifa og félagar létu rigninguna ekki aftra sér frá því að taka fyrstu Laugavegsæfinguna í dag. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Ég er ánægð með ykkur.
Það sem er svo gaman við Laugaveginn er:
1. Að vera hluti af þessu
2. Að sjá nýtt og nýtt landslag, ægifagurt, og þekkja það alltaf betur og betur með ári hverju.
3. Að finna að maður getur hlaupið Laugaveginn
4. Að hitta fólkið á drykkjarstöðvunum
5. Að Koma í mark sjá mynd sem Garðari og Sirrý tóku (þau eru alveg að fara að lofa að koma 2009)
6. Að láta Bryndísi Magnúsar taka á móti sér, svo jákvæð, nærgætin og sæt, vefja mann inní teppi og hugsa um mann.
7. Að fá súkkulaðiafmælisköku frá Sif-Ingólfssystir.
8. Að hitta alla sigurvegarana sem voru að gera það svo gott og eru alveg í sjöunda himni (geta líka pirrað pínu ef þeir ætla að fara að vorkenna manni fyrir lélegan tíma-hvað)
Ég lofa sjálfri mér því hér með að hlaupa Laugaveginn öll þau ár sem ég hef tök á, verð í formi til og hef gaman af.
Vinsamlegast skrifið ykkur í athugasemdir sem ætlið að koma með að ári svo ég geti fylgst með og hermt það upp á ykkur.

Laugaveginum 2008 lokið

Sunday, April 6, 2008

Fullt að gerast fyrir fólk með hlaupadellu.

Það er alltaf meira gaman fyrir okkur hlaupasjúklinga þegar margt era ð gerast í hlaupalífinu, heyra frá gengi félagana, metum o.fl. Það svona stimplar í mann stuðið þegar mikið er um að vera.
Parísarmaraþonið var í dag. Þar voru tveir félagar okkar úr Laugaskokki, Trausti og Baldur Haraldss. Trausti hljóp á 2.59:08, seigur strákurinn, Baldur var á 3:13:53.
Sá sem var fyrstur af Íslendingunum í Paris var Nil, hljóp á 2: 34 eitthvað, frekar flottt, Eins og flestir vita þá er hann að hlaupa heljarmikið magn af kílómetrum í æfingum sínum fyrir deka-Ironman. Það er ljóst að Elínaraðferðin rokkar.(Þið muniðað skilgreiningin á Elínaraðferðinni: Æfa fyrir hundrað km. hlaup og taka svo eitt maraþon í leiðinni og bæta sig mjög mikið).
Í útvarpinu í dag var frétt um nýtt Íslandsmet í 10.000 m. hlaupi. Það var Kári Steinn sem hljóp á 29:29.. ef ég hef tekið rétt eftir. Síðasta íslandsmet í 10k. var sett nítjánhundruð sjötíu og eitthvað og það er búið að bíða eftir þessu. Þetta er frábært hjá Kára Steini. Fram kom í frétinni að ólympiulágmark væri 28: eitthvað og að Kári væri töluvert frá því, þær eru orðnar dýrar sekúndurnar þegar hlaupið er á þessum tíma. En vonast er til að drengurinn hlaupi enn hraðar þegar líður á vorið-sumarið.

Laugaskokkarar mættu nokkrir á venjulega æfingu frá Laugum Ég veit ekki stemminguna þar því ég ásamt nokkrum Bostonförum lögðum land undir bíl og brunuðum til foringjans og spúsu hans, sem eru orðnir staðarhaldarar á Úlfljóstvatni. Foringinn sendi okkur hlaupand kringum Álftavatn sem taldi 26k. Mikið upp og niður – ekta Bostonæfing. Ég þurfti að hafa mikið fyrir því að halda í við Helga+Sævar+Baldur Jóns. Kristín og Edda hlupu líka og Lísa kom með okkur slatta af km. Síðan fengum við hressingu hjá foringjasettinu. Enn einn góður laugardagur á hlaupum í félagsskap hlaupavina sinna, Takk kærlaega fyrir mig.

Ég mæli hiklausst með Sunnudags-morgunnhlaupi Bibbu og Fjólu, en þær fara langt og hægt frá Árbæjarlaug. Upplagt endurheimtahlaup fyrir suma, eða fyrir þá sem vilja safna Km.

Saturday, March 22, 2008

Allir út og suður á löngum æfingum

Margir Laugaskokkarar eru, þessa dagana, að fara langar æfingar fyrir yfirvofandi maraþon. Þeir nota ýmis ráð til að koma æfingunum fyrir í lífi sínu og fá tilbreytingu. Munda sást t.d. hlaupandi úr Hafnarfirði með tveimur herrum eldsnemma í morgunn. Sigrún+Ásta fóru upp að Gljúfrasteini, Ívar og Ingólfur djöfluðust fram og til baka, upp og niður brekkur á Krísuvíkurvegi (sérstök Boston-eftirlíking) og enn aðrir mættu á æfingu eins og lög gera ráð fyrir og hlupu venjulegar leiðir.
Þegar maður er búin að hlaupa 10 maraþ. Og leiðir bæjarins 100000000000 (hundrað þúsund miljón) sinnum Þá þiggur maður með þökkum tilbreytingu í langa æfingu. Ég var svo stálheppin að sjá á Evu-bloggi að Þau hjónin ætluðu upp á Mosfellsheiði og hlaupa í bæinn. Auðsótt var að fá að slást í hópinn. Náði að hlaupa með þeim krúttum u.þ.b. 20km. Fékk þá náðarsamlegast að dragast afturúr. Þetta var frábær æfing í góðum félagsskap- Takk kærlega fyrir mig.
Í Hádeginu voru svo Laugaskokkarar að tínast inn í Laugar. Virtust voða ánægðir með afrakstur dagsins ;)

Thursday, March 20, 2008

Skírdagur- ískalt og margir inni.

Í dag var ég alveg ákveðin í að fara Elliðarárdalinn alveg uppí Víðidal= 18km. En hitastig undir frostmarki og strekkingur breyttu í inniæfingu.
Nokkrir Laugaskokkarar, Ragnheiður, Gunnar, foringinn o.fl. hörkuðu af sér of fóru út. Slatti var inni þar sem aðstæður voru hinar bestu, passlega kalt og fátt fólk.
Fékk ábendingu hjá Elínu um að æfa brekkur f. Boston og tók 5km. af æfingunni niður brekku- létt og skemmtilegt.

Sunday, March 9, 2008

Laugardagur- Veisla hjá Ástu

Laugardagur 8. mars 2008

Milli 20 og 30 Laugaskokkarar voru mættir hálftíu í Turninn í Kópavogi. Í boði var hlaup og súpa hjá Ástu á eftir.
Hlaupið var frá 10k. upp í 28k. Fólk var á misjöfnu róli, ég var aðallega hlaupandi á eftir fólki sem var að hlaupa heim til sín. Fyrst Ásta og Sóla sem voru að fara að græja súpuna og svo Eva og Þórólfur sem hlupu að heiman og komu við í turninum, hittu hina hlauparana, hlupu með þeim nokkra km. kláruðu svo æfinguna með því að hlaupa heim. Ég lauk æfingunni með Gunnari, Pétri, Guðbjörgu, Kolbrúnu, Ólöfu, Guðrúnu og Ragnheiði og skrifa 13km. á æfinguna, næ þá 50k. í vikunni. Þæfingsfærð og leti gerðu æfinguna nokkuð strembna hjá mér. Tvær sem voru að hlaupa 17k. í fyrsta skipti komu síðar, hafði þeim gengið mjög vel.
Þegar við vorum að teyja í turninum á eftir heyrðist á tal nokkurra sem voru að æfa og vinna þarna. Þetta er keppni sem er í gangi, þannig að sá sem er fljótastur að haupa upp stigann frá botni og upp á 15. hæð, þar sem World Class er, fær frítt árskort (held ég) og Jóhanna litla, sem hafði verið löt og þreytt og allt á æfingunni, æstist öll upp við að heyra þetta. Öll leti og þreyta fauk burt. Náði að æsa þrjár konur með í sigakeppnina. Smá glímuskjálfti kom þegar við trítluðum niður stigann- reyndi að tríltla ekki of hratt, ekki taka orku í að fara niður. Á leiðinni upp var aðalatriðið að láta þær hinar ekki ná mér, lærin titruðu eins og strá í vindi upp síðustu hæðirnar- . Tíminn var 2.27 mín. (minnir mig) og svipaður hjá þeim hinum. (Hvað eigið þið í stiganum ? ;)
Í Starhólmanum var svo boðið í súpu. Í reynd var þetta hádegisveisla, pastaréttur með parmesan+brauði og í eftirrétt var ostakaka m. berjasósu og skúffu/ skúkkulaðikaka – báðar sjúklega góðar og svo mikið var í boði að mér tókst að rúlla út með þeim síðustu, afvelta af áti, nóg var eftir. Reikna með að Steini og strákarnir fái pastarétt í matinn fram e. vikunni ;)
Takk kærlega fyrir mig.
Einbeitingu dagsins á Aðalsteinn haldandi utanum skál með skúffuköku prílandi uppí tripptrappstól – tókst án hjálpar- ætlaði sko ekki að láta neitt trufla þetta atriði.