Fossvogur á 68
Tókst í fyrsta skipti í þessu 12 vikna æfingarprógrammi að gera miðvikudagsæfinguna eins og hún átti að vera. Lagt af stað frá Laugum ásamt slatta af laugaskokkurum (milli 10 og 20) flestir á rólegu nótunum. Hljóp með tveimur Pétrum fossvogshringinn á tíma nema hvað? Við skoðuðun garmsins sem var með í för (hans Péturs Ísl.) kom í ljós að hann hafði stoppað eftir 9km. En þessir 9 km. voru á 5:16 meðalhraða eða á 47 mín. Við Pétur erum sammála um að við hefðum ekki hægt á okkur eftir það (frekar bætt í) þannig að þessi hringur var á 68 mínútum og ekki orð um það meir. Pétur Takk kærlega fyrir samfylgdina.
Nýtt fólk er á hverri æfingu hjá laugaskokki og ekki séns að læra nönin þeirra allra strax. Það kemur, Í gær mætti vinnufélagi minn Kristjana frá Selfossi og býð ég hana hér með formlega velkomna. Það eru 2 ár síðan ég bauð henni formlega á æfingu með okkur og góðir hlutir gerast hægt, ég er ekki í vafa um að hún á eftir að sýna hvað í henni býr.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment