Rúmlega 20 skokkarar voru mættir í Laugar í morgunn. Alltaf gaman að hitta liðið. Hópurinn lagði af stað í austur, stærsti kjarninn hljóp í grafarvog samtals um 13km. Þá var að byrja ballið, ákvað að fara niður í bæ. Endaði út við flugvöll og svo Réttarholtsveg heim. Ekki mikið mál að fara vegalengdina en sénslaust að halda hraða seinnihlutann. Geypileg vetrarfegurð í bænum sól, snjór og allt.
Skoraði á Davíð í keppni í gamlárshlaupinu, hann tók áskoruninni.
Ráðlegging dagsins: Kom frá Ívari: “ þú skalt bara halda jöfnu tempói og ekki rikkja fram og til baka”. Að hann skuli ekki hafa minnst á þetta fyrr ;)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment