Sá sögulegi atburður gerðist í dag að aðeins einn karlmaður mætti á æfingu. Það hefur oft komið fyrir að ein kona sé á æfingu. En nokkrar konur og einn karl; ekki svo lengi sem elstu menn muna.
Erfiðasta æfing vikunnar framundan, þegar ég get hana þá verð ég í því besta formi sem ég hef nokkurntíma verið. En að hún yrði eins hæg og raun varð datt mér ekki í hug. Glerhálka, niðamyrkur og hífandi rok gerði þetta að stanslausum ísdansi. Ljósi punkturinn var: mjög góður dansherra.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment