Töluverður fjöldi mætti á fyrstu æfingu ársins hjá Laugaskokki í dag. Óli stóð upp á polla og reyndi að koma tölu á hlauparana, ekki veit ég hver útkoman var, gæti trúað um 30 manns. Ég var búin að koma auga á Helga og Davíð sem ákjósanlega félaga á þessari æfingu. Það kom á daginn, enn einu sinni, að Helgi er snillingur í að halda tempói, ég pantaði 5:30 til 5:40 tempó og garmurinn sýndi: 5.35 meðaltempó þegar hringnum lauk í Laugum 13km. síðar. ég fann að Davíð var sterkari en ég á þessari æfingu en þar sem þetta var ekki keppni eins og á Gamlárs þá verður þetta hvergi skráð svo það skiptir ekki máli;)
Ívar og Halldór, tveir Maiamifarar í stuði, hlaupu fram úr hópnum langfyrstir og Bogga, Pétur Ísl. O.fl. Voru næsta holl.
Þórunn, Miamifari, er aldeilis að sanna sig sem hlaupari, hún hljóp með okkur nær alla leiðina. Kári, Gunni og Munda komu upp að okkur á miðri leið “Hva er þetta ekki vaxandi æfing” Svo smá hurfu þau. Já já það geta þetta sumir.
Ég bætti við 2km. á brettinu á 5.30 til að ná 15km. samkv. Prógramminu. Ef ég held svona áfram þá verður þessi vika 92km.
Vigtin hefur ekki sýnt lægri tölu í marga mánuði, treysti á að ná upp þyngd um borð í skipinu góða sem mun bíða okkar að hlaupi loknu.
Hér Munum við Miamifarar stíga á fjöl að hlaupi loknu og sigla um höfin blá í 6 daga.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment