Samkvæmt prógramminu átti að fara: 14km og þar af 10 á 5:12 eða hraðar og nota Elliarárdalinn svo átti að fara 10km. rólega á morgunn.
Alveg gráupplagt að snúa þessu við og taka poveraid á morgunn. Hljóp í dag lengst af með Hafdísi. Var farin að halda að þetta yrðu þéttingshraðir 10km en það rættist úr þegar Hafdís hélt áfram og ég sleðaðist ein upp brekkuna hjá Borgarspítalanum, sú er löng og brött, Þá fuku allir góðu kílómetrarnir okkar og æfingin varð róleg eins og átti að vera. Nú er bara að byggja upp sæmilegt stress fyrir annað kvöld.
Það eru 17 dagar í hlaupið góða. Og þá mun þessu bloggi ljúka (Kannski einhverjar fréttir að úrlsitum og hvernig menn taka sig út siglandi). Ég treysti á ykkur Laugaskokkara að taka við keflinu og halda síðunni lifandi. Kannski einhver Bostonfari að leyfi okkur að fylgjast með. Einnig upplagt fyrir Hafdísi að vera með yfirlýsingar fyrir Kaupmannahöfn. Ég er löngu búin að læra það að nota tækifærin og vera með yfirlýsingarnar fyrirfram, það er nefnilega ekkert víst að maður verði kokhraustur eftir blessað hlaupið.
Bostonfarar! Hér er linkur á skemtilega töflu.
http://www.rrca.org/resources/articles/baasplit.html
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment