Fimmtudagur
Sprettir 3x1000m. á 4.50, ein mín. ganga á milli – reyndist auðvelt og skemmtilegt. Komst að því í brettaspjalli við Summa að ég væri eins og hann meiri svona sprettatýpa.
Frekar fáir á æfingu (úti) en fjöldinn allur af laugaskokkurum inni ýmist að massa sig eða hlaupa.
Allt í rugli
Er búin að brjóta heilann um hvernig geti staðið á því að vikan stefnir í 52km. en á prógramminu stendur samtals 62km. Búin að fara yfir æfingarnar aftur og aftur,leggja saman, telja daga og allt, þangað til ég loksins sá hugsanavilluna. Sprettirnir sem ég tók í gær áttu að vera í dag og bara 10km. rólegir í gær. Í staðinn stóð ég í þeirri meiningu að það væri hvíld í dag og fór í nudd eins og fín frú. ;)
Verð að fá að koma hér að hamingjuóskum til stórvinar míns Sævars sem á hálfraraldarafmæli í dag. Megið þig Bryndís eiga góðan dag í Lundúnaborg
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment