Fimmtudagur
Sprettir 3x1000m. á 4.50, ein mín. ganga á milli – reyndist auðvelt og skemmtilegt. Komst að því í brettaspjalli við Summa að ég væri eins og hann meiri svona sprettatýpa.
Frekar fáir á æfingu (úti) en fjöldinn allur af laugaskokkurum inni ýmist að massa sig eða hlaupa.
Allt í rugli
Er búin að brjóta heilann um hvernig geti staðið á því að vikan stefnir í 52km. en á prógramminu stendur samtals 62km. Búin að fara yfir æfingarnar aftur og aftur,leggja saman, telja daga og allt, þangað til ég loksins sá hugsanavilluna. Sprettirnir sem ég tók í gær áttu að vera í dag og bara 10km. rólegir í gær. Í staðinn stóð ég í þeirri meiningu að það væri hvíld í dag og fór í nudd eins og fín frú. ;)
Verð að fá að koma hér að hamingjuóskum til stórvinar míns Sævars sem á hálfraraldarafmæli í dag. Megið þig Bryndís eiga góðan dag í Lundúnaborg
Friday, January 18, 2008
Saturday, January 12, 2008
Stemming í Laugum
Stærðar hópur mættur í Laugar í morgunn kl 10. eftir smá pælingar hvert ætti að fara, hvað langt og hvað hratt, enginn foringi, fóru flestir saman af stað meðfram Sæbrautinni. Margir fóru Rocky En við Helgi, Davíð, Summi, Elín og Elli fórum áfram út á Nes, yfir Lindarbrautina og svo heim hjá Nauthóli sáluga. Frábært veður og færi ágætt. Þetta gerði 19km. á mínum garmi og meðaltempó 5:33 Svo bætti ég við tveimur á 5:27 inni fór þar eftir ráðleggingum Ella sem sagði að þá kæmi maður heitari inn í teyjurnar og það var raunin miklu betra að teyja svona heitur. Þannig náðust 21km.
Ég mæli með Helga sem tempóstjórnanda, hann er mjög nákvæmur.
Ólöf kona Davíðs mætti á sína aðra æfingu í dag, mjög gaman að hún skuli vera mætt. Velkomin Ólöf.
Takk fyrir mig í dag.

Poweraid er æði.
4. Poweraid vetrarins.
Mér finnst Poweaid æði. Ég mæti ef ég get haldið á vetlingi. Hef meira að segja náð því að vera síðust í þessu hlaupi. Skil ekki af hverju sumar hlaupavinkonur mínar elska ekki þetta hlaup ;) Alltaf gott að fá tímamælingu, stöðuna á því hvernig maður er hverju sinni og smá spark í rassinn.
Fyrir tveimur árum í desember-Poweraidinu hljóp ég á 50:02 (í eftirdragi Ívars) en nú á 50:30-óstaðfest. Mjög sambærilegt. Þá hljóp ég Miamimaraþonið 3vikum síðar, líka í með hérann “góða”,á 3:41:16 =5:15 meðaltempó. Nú skal stefnt á 5:12 sem skilar 3:39:25. á jöfnu splitti. Púff, ég veit alveg hvernig manni líður á þrítugasta og eitthvað km.
Þetta Hlaup var fínt eins og alltaf enn meira gaman þegar börnin mans mæta líka. Frumburðurinn og kærastan voru með mömmu, hún að hlaupa sitt fyrsta 10km. Það er svo gaman að fylgjast með byrjendunum og finna þegar þeir eru að fá hlaupabakteríuna. Alveg sömu taktarnir hjá öllum. Erla stelpan hans Trausta er líka í þessari stemmingu mætir og hleypur full af áhuga.
Miamifararnir Stefán Viðar og Halldór Sævar hlupu flott hlaup – ég held þeir séru í sínu allra besta formi.

Wednesday, January 9, 2008
Samkvæmt prógramminu átti að fara: 14km og þar af 10 á 5:12 eða hraðar og nota Elliarárdalinn svo átti að fara 10km. rólega á morgunn.
Alveg gráupplagt að snúa þessu við og taka poveraid á morgunn. Hljóp í dag lengst af með Hafdísi. Var farin að halda að þetta yrðu þéttingshraðir 10km en það rættist úr þegar Hafdís hélt áfram og ég sleðaðist ein upp brekkuna hjá Borgarspítalanum, sú er löng og brött, Þá fuku allir góðu kílómetrarnir okkar og æfingin varð róleg eins og átti að vera. Nú er bara að byggja upp sæmilegt stress fyrir annað kvöld.
Það eru 17 dagar í hlaupið góða. Og þá mun þessu bloggi ljúka (Kannski einhverjar fréttir að úrlsitum og hvernig menn taka sig út siglandi). Ég treysti á ykkur Laugaskokkara að taka við keflinu og halda síðunni lifandi. Kannski einhver Bostonfari að leyfi okkur að fylgjast með. Einnig upplagt fyrir Hafdísi að vera með yfirlýsingar fyrir Kaupmannahöfn. Ég er löngu búin að læra það að nota tækifærin og vera með yfirlýsingarnar fyrirfram, það er nefnilega ekkert víst að maður verði kokhraustur eftir blessað hlaupið.
Bostonfarar! Hér er linkur á skemtilega töflu.
http://www.rrca.org/resources/articles/baasplit.html

Monday, January 7, 2008
Saturday, January 5, 2008
Mosfellsheiði í Myrkri. Fimmstjörnu æfing og súpa hjá Öggu.
Æfingin átti að vera 26k. rólega(5:40-5:50)
Varð: 26-26.5 á 5.30 –frekar flott. Með hlaupakavaler eins og Ævar þá bara hleypur maður og ekkert kjaftæði.
Ívar og Siggi Hansen höfðu ákveðið að keyra (í bíl) upp á Mosfellsheiði Frá World Class í Mosó, þaðan sem Laugaskokksæfing átti að vera í dag, 30km.+ og hlaupa til baka. Mig langaði að stökkva á þessa rútu, hlaupa bara styttra eða e. mínu prógrammi=26k. Reyndar dálítið skerí að vera ein á miðri heiði um hávetur í niðamyrkri en ævintýralegt og freistandi að brjóta upp kerfið. Ég útbjó mig vel með endurskinsvesti+ síma+ þrúgusykur, lítra af vatni o.fl.
Áður en við lögðum af stað að heiman fékk Ívar símtal, einhver að melda sig með. Viti menn, haldiði að ég hafi ekki grætt hlaupafélaga, ég ætlaði varla að trúa þessu. Ævar hafði líka séð að æfing eins og þessi var tækifæri sem maður lætur ekki fram hjá sér fara.
Kl.8 lögðum við af stað að nýju í Worldclass-stöðinni í Mosó. Þar biðu Siggi Hansen og Inga ásamt Ævari. Inga skutlaði okkur að afleggjaranum að Grafningi. Bíllinn sagði: 26km. Við Ævar af stað. Tveimur tímum, tuttugu og fimm mínútum síðar komum við aftur í Mosó-WorldClass.
Þessi æfing var algjört æfintýri. Frábært veður, og auðar götur. Það var svo mikið myrkur fyrstu km. að við sáum ekki veginn, rétt aðeins hvítu línuna í kanntinum. “Er þetta ekki brekka"? "Jú jú ég finn það". Ég meinaða við sáum ekki brekkuna.
Þegar við nálguðumst vesturlandsveginn mættum við Trausta, Hann hljóp svo áfram móti strákunum. Svo stuttu seinna komu laugaskokkarar í hópum. Hellingur af fólki greinilega mætt á æfingu. Mjög gaman að hitta þau.
Öggusúpan var frábær mikið stuð. Gaman að heimsækja Öggufjöslkyldu. Eyrún sagði mér að hún væri sko ekkert nýbyrjuð í skóla.
Ævar, Agga og allir laugaskokkarar takk kærlega fyrir mig í dag.
Ívar verðlaunaði sína í kvöld og bauð henni þríréttað á Hereford, maður fær nú ýmislegt ef maður hleypur hratt ;)

4.janúar.
Föstudagar hafa hingað til verið hvíld fyrir langa æfingu á laugardegi. En nú var: 2x 3k á 4.50 og 2mín hvíld á milli 3k upphitun+3k niðurskokk =12k.
Gekk ágætlega. Fyrri spretturinn, ef 3k kallast þá sprettur, var erfiður en tókst. Sá seinni var algjör killer hoppaði einu sinni af en fljótt á aftur tókst næstum. Átti nóg eftir í niðurskokk.
Ég var í góðum félagsskap (eins og alltaf á Laugaskokksæfingum). Berglind var á bretti við hliðina á mér að byrja sub. 10 prógramm – Það verður gaman að fylgjast með henni í því. Hún er eins og Munda frábær hlaupari ef hún æfir.

Fimmtudagur 3. janúar
Ég vissi að þetta myndi verða erfiðasta æfingin= 18k á 5.20. Rok og rigning úti, fín afsökun til að fara á brettið- var bara þreytt og löt og gat ekki nokkurn skapaðan hlut á brettinu. Hoppaði af aftur og aftur og allt. Endaði í 10k. ÖÖÖÖÖÖ.
Wednesday, January 2, 2008
Töluverður fjöldi mætti á fyrstu æfingu ársins hjá Laugaskokki í dag. Óli stóð upp á polla og reyndi að koma tölu á hlauparana, ekki veit ég hver útkoman var, gæti trúað um 30 manns. Ég var búin að koma auga á Helga og Davíð sem ákjósanlega félaga á þessari æfingu. Það kom á daginn, enn einu sinni, að Helgi er snillingur í að halda tempói, ég pantaði 5:30 til 5:40 tempó og garmurinn sýndi: 5.35 meðaltempó þegar hringnum lauk í Laugum 13km. síðar. ég fann að Davíð var sterkari en ég á þessari æfingu en þar sem þetta var ekki keppni eins og á Gamlárs þá verður þetta hvergi skráð svo það skiptir ekki máli;)
Ívar og Halldór, tveir Maiamifarar í stuði, hlaupu fram úr hópnum langfyrstir og Bogga, Pétur Ísl. O.fl. Voru næsta holl.
Þórunn, Miamifari, er aldeilis að sanna sig sem hlaupari, hún hljóp með okkur nær alla leiðina. Kári, Gunni og Munda komu upp að okkur á miðri leið “Hva er þetta ekki vaxandi æfing” Svo smá hurfu þau. Já já það geta þetta sumir.
Ég bætti við 2km. á brettinu á 5.30 til að ná 15km. samkv. Prógramminu. Ef ég held svona áfram þá verður þessi vika 92km.
Vigtin hefur ekki sýnt lægri tölu í marga mánuði, treysti á að ná upp þyngd um borð í skipinu góða sem mun bíða okkar að hlaupi loknu.
Hér Munum við Miamifarar stíga á fjöl að hlaupi loknu og sigla um höfin blá í 6 daga.

Skemmtileg vika framundan.
Þessi vika er mjög skemmtileg:
þriðjud. 1.jan. : Morgunnhringu rólegt recovery = 6km.
mið 2.jan. Fossvogshringur alla leið niður á Lækjartorg Skúlagata til baka 5:30 til 5:40 tempo 15k.
fim. 3.jan.
Allan Elliðarárdalinn frá Laugum að Laugum eins jafnt og þú getur @ 5:20 tempo 18k
fös. 4.jan
Interval U/N 3 km þá 2 * 3000 @ 4:50 tempo =12,4 km hraði R = 2 mín 12k
lau. 5.jan. = Rólegt 26k
Þetta gera samtals 87km. Í gær fór ég 2 aukalega svo nú er bara að halda. Ætla að mæta á útiæfingu hjá Laugaskokki og reyna að gabba einhverja með mér 15km á 5:30 -5:40.
Ég skal hafa það af að geta allar æfingarnar í prógramminu þessa viku. Morgunndagurinn verður erfiðiastur.

Nýársdagur
1. janúar 2008.
Prógramm: "Morgunnhringur –rólegt recovery".
Ef allir dagar væru svona, eina sem þarf að hugsa um er að vakna og hlaupa nokkra km. rólega. Hljóp að heiman og morgunnhringinn, heimsótti mömmu í leiðinni þannig náðust tvær flugur í einu höggi. Það er einn af kostum við hlaupin að það er stundum hægt að aðlaga þau að fjöslkyldulífinu. T.d. með því að gabba börnin sín til að hlaupa með sér þá er maður búinað koma því þannig fyrir að það lítur út fyrir að maður sé að gera eitthvað með fjölskyldunni.
Gleðilegt nýtt ár.

Subscribe to:
Comments (Atom)