Það er alltaf meira gaman fyrir okkur hlaupasjúklinga þegar margt era ð gerast í hlaupalífinu, heyra frá gengi félagana, metum o.fl. Það svona stimplar í mann stuðið þegar mikið er um að vera.
Parísarmaraþonið var í dag. Þar voru tveir félagar okkar úr Laugaskokki, Trausti og Baldur Haraldss. Trausti hljóp á 2.59:08, seigur strákurinn, Baldur var á 3:13:53.
Sá sem var fyrstur af Íslendingunum í Paris var Nil, hljóp á 2: 34 eitthvað, frekar flottt, Eins og flestir vita þá er hann að hlaupa heljarmikið magn af kílómetrum í æfingum sínum fyrir deka-Ironman. Það er ljóst að Elínaraðferðin rokkar.(Þið muniðað skilgreiningin á Elínaraðferðinni: Æfa fyrir hundrað km. hlaup og taka svo eitt maraþon í leiðinni og bæta sig mjög mikið).
Í útvarpinu í dag var frétt um nýtt Íslandsmet í 10.000 m. hlaupi. Það var Kári Steinn sem hljóp á 29:29.. ef ég hef tekið rétt eftir. Síðasta íslandsmet í 10k. var sett nítjánhundruð sjötíu og eitthvað og það er búið að bíða eftir þessu. Þetta er frábært hjá Kára Steini. Fram kom í frétinni að ólympiulágmark væri 28: eitthvað og að Kári væri töluvert frá því, þær eru orðnar dýrar sekúndurnar þegar hlaupið er á þessum tíma. En vonast er til að drengurinn hlaupi enn hraðar þegar líður á vorið-sumarið.
Laugaskokkarar mættu nokkrir á venjulega æfingu frá Laugum Ég veit ekki stemminguna þar því ég ásamt nokkrum Bostonförum lögðum land undir bíl og brunuðum til foringjans og spúsu hans, sem eru orðnir staðarhaldarar á Úlfljóstvatni. Foringinn sendi okkur hlaupand kringum Álftavatn sem taldi 26k. Mikið upp og niður – ekta Bostonæfing. Ég þurfti að hafa mikið fyrir því að halda í við Helga+Sævar+Baldur Jóns. Kristín og Edda hlupu líka og Lísa kom með okkur slatta af km. Síðan fengum við hressingu hjá foringjasettinu. Enn einn góður laugardagur á hlaupum í félagsskap hlaupavina sinna, Takk kærlaega fyrir mig.
Ég mæli hiklausst með Sunnudags-morgunnhlaupi Bibbu og Fjólu, en þær fara langt og hægt frá Árbæjarlaug. Upplagt endurheimtahlaup fyrir suma, eða fyrir þá sem vilja safna Km.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment